Heim
Um hotyoga
Um hotyoga-copy1
Hafa samband
Stodur
Namskeid
Naudsynjar
Lagalisti
SAGA HOT YOGABikram Choudhury sem er upphafsmaður svokallaðs hot yoga þróaði þessa aðferðafræði þ.e.a.s. að nota hita við æfingarnar út frá hnémeiðslum sem hann varð fyrir á 17ára aldri. Bikram var úrskurðaður með ónýt hné og læknar sögðu honum að hann ætti ekki eftir að geta gengið aftur. Yogakennari og þjálfari Bikrams á þessum árum beitti þá þessari aðferð á Bikram að láta hann gera ákveðnar æfingar með hnén í svona miklum hita þannig að Bikram náði að styrkja hnén aftur upp vegna þess að við hitann gátu þeir unnið dýpra og hreyfigetan varð betri og gerði það að verkum að Bikram náði svo fullum bata.Bikram þróaði svo alhliða æfingaprógram út frá þessari reynslu og raðaði upp ákveðnum Hatha stöðum í ákveðna röð þannig að tekið er á öllum vöðvaflokkum og liðamótum líkamans til jafns. Megin áhersla er hryggurinn og allar æfingar eru hugsaðar út frá honum.HOT YOGA HJÁ JÓHÖNNUHot Yoga hjá Jóhönnu Karlsdóttur er prógram sem þróað er út frá upphafsmanninum Bikram Choudrey en þetta prógram er byggt á ákveðnum yogastöðum (HATHA) sem gerðar eru í upphituðum sal í 40°C hita. Þessar æfingar taka á öllum líkamanum jafnt og þétt. Æfingarnar eru aðallega styrktarstöður þar sem megin áhersla er lögð á það að styrkja vöðvana í kringum hrygginn. Hryggurinn er þungamiðjan í þessu æfingaprógrami. Opnun liðamóta er einnig megináhersla og hjálpar það okkur að viðhalda sveigjanlegum liðamótum sem hjálpar til við að halda öllu flæðinu í líkamanum góðu bæði hvað varðar blóðrás og einfaldlega orku.Hitinn gerir það að verkum að líkaminn hitnar upp fyrr og þar af leiðandi er hægt að vinna dypra og komast dypra inn í stöðurnar. Hreyfigeta við liðamót verður betri og það fer betur með líkamann að sveigja hann og teygja þegar hann er heitur. Einnig gerir hitinn það að verkum að við svitnum og losum okkur við úrgangsefni (detox) og mikil brennsla á sér stað.
©2009 HOT YOGA ICELAND Jóhanna Karlsdóttir sími: 699 6946 email: johanna_sporthusid.is
Heim
Kennari
Hafa samband
Stodur
Namskeid
Stodur 2
Naudsynjar
Lagalisti